Erlent

Donald Trump kjörinn forseti Bandaríkjanna

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump verður 45. forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump verður 45. forseti Bandaríkjanna. Vísir/Getty

Fjölmiðlar ytra hafa nú lýst því yfir að Donald Trump verði nýr forseti Bandaríkjanna. Hann vann óvænta sigra í fjölda ríkja en samkvæmt könnunum síðustu daga þótti ólíklegt að Trump myndi takast að vinna. Svo virðist sem að hann hafi verið með mun hærra hlutfall þeldökkra og spænskættaðra Bandaríkjamanna með sér í liði en talið var.

Trump hefur nú tryggt sér þá kjörmenn sem hann þurfti.

Meðal þess sem að Trump hefur heitið því að gera á fyrstu dögum sínum í starfi er að skipa sérstaka rannsóknarnefnd til að rannsaka Hillary Clinton, að afnema heilbrigðiskerfisbreytingar Barack Obama, afnema kjarnorkusamninginn við Íran, semja á nýtt um viðskiptasamninga við önnur ríki og reka milljónir ólöglegra innflytjenda úr landi.

Í sigurræðu sinni þakkaði Trump Hillary Clinton fyrir ötult starf í þágu Bandaríkjamanna um árabil og sagði hana hafa barist hart í kosningabaráttunni. Hann kallaði eftir einingu innan Bandaríkjanna og sagðist ætla að vera forseti allra íbúa Bandaríkjanna.

Hann sagði að Bandaríkin myndu héðan frá ekki sætta sig við neitt annað en það besta. Bandaríkin myndu eiga í góðu sambandi við aðrar þjóðir og þrátt fyrir að Trump myndi hafa hag Bandaríkjanna fyrst og fremst í huga, myndi hann koma fram við önnur ríki af sanngirni.

Velgengni Trump í kosningunum hefur valdið miklum usla á mörkuðum um allan heim.

Þegar Trump tekur við völdum á næsta ári munu repúblikanar vera við stjórnvölin í Hvíta húsinu og í báðum deildum þingsins.

Þrátt fyrir sigur Trump er mjög líklegt að þegar öll atkvæði hafa verið talin mun Hillary Clinton hafa hlotið meirihluta atkvæða í Bandaríkjunum, en færri kjörmenn. Undir lok talningarinnar voru nokkur mikilvæg ríki þar sem talningin stóð sem lengst yfir var munurinn á milli frambjóðenda mjög lítill.

Framboð Hillary Clinton hefur lýst því yfir að hún muni ekki tjá sig um kosningarnar að svo stöddu. Hins vegar er hún sögð hafa hringt í Donald Trump og óskað honum til hamingju.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira
×