Erlent

Donald Trump í gegnum árin

Birgir Olgeirsson skrifar
Donald Trump við opnun á Taj Mahal-hótelinu og spilavítinu í Atlanta.
Donald Trump við opnun á Taj Mahal-hótelinu og spilavítinu í Atlanta. Vísir/Getty
Verðandi forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, fæddist í Queens í Bandaríkjunum árið 1946. Hann er 70 ára gamall og verður því elsti forseti Bandaríkjanna þegar hann verður svarinn í embætti. Hann var næstyngstur af fimm börnum Fred og Mary Trump. Faðir hans var einn af stærstu verktökum og leigusölum New York-borgar og er Donald sagður hafa lært ansi margt af föður sínum þegar kemur að viðskiptum.

Trump er sagður hafa verið óstýrilátt barn sem varð til þess að foreldrar hans ákváðu að senda hann í herskólann í New York þegar hann var þrettán ára gamall í þeirri von um að þar myndi hann læra aga og mannasiði. Hann komst þó undan herskyldu þegar Víetnam-stríðið geisaði, vegna náms og læknisfræðilegra ástæðna, og hefur því aldrei verið í bandaríska hernum. Í viðtali við New York Times í fyrra sagði hann ástæðuna fyrir læknisleyfi frá herskyldu hafa verið hælspora.

Donald Trump og faðir hans Fred Trump.Vísir/Getty
Eftir að hafa lokið námi við háskólann í Pennsylvaniu árið 1968 ákvað hann að einbeita sér að fjárfestingum á fasteignamarkaðinum sem hann gerði með einni milljón dollara sem hann fékk að láni frá föður sínum.

Gekk til liðs við föður sinn

Hann gekk síðar til liðs við fyrirtæki föður hans, Elizabeth Trump and Son. Hann tók við fyrirtækinu árið 1971 og ákvað þá að breyta nafni þessi í Trump Organization. Fyrirtækið var með um 15 þúsund íbúðir til útleigu í Queens og Brooklyn en árið 1972 var það sakað um að neita svörtu fólki um íbúðir. Í júlí þetta sama ár bað svört kona um að fá að leigja íbúð af fyrirtækinu í Brooklyn. Hún fékk þau svör að engin íbúð væri á lausu. Sama dag mætti hvít kona með sömu bón en hún fékk hins vegar að velja á milli tveggja íbúða sem voru allt í einu lausar. Reyndust þær báðar vera útsendarar á vegum bandarískra yfirvalda en fyrirtækið náði að lokum sátt í málinu.

Trump með líkan af Trump-turninum.Vísir/Getty
Varð áberandi á Manhattan

Trump ákvað síðar að leggja áherslu á íburðarmiklar byggingar á Manhattan-eyju, en á meðal framkvæmda má nefna hvernig hið niðurnídda Commodore hótel var gert upp og fékk síðar nafnið Grand Hyatt. Þá reisti hann einnig 68 hæða Trump-turninn við Fifth Avenue, eina af glæsilegustu breiðgötum New York-borgar.

Hann var ekki bara á fasteignamarkaði Manhattan því hann stundaði næturlífið grimmt og vingaðist við stjörnurnar. 

Trump-byggingarnar urðu fleiri, Trump Place, Trump World Tower og Tump International Hotel svo dæmi séu tekin, en finna má Trump-turna í Múmbaí, Istanbul og Filipseyjum.

Hann hefur stofnað hótel og spilavíti og fjölda annarra fyrirtækja en fjögur þeirra hafa farið í gjaldþrot: The Trump Taj Mahal, Trump Plaza Hotel, Trump Hotels and Casinos Resorts og Trump Entertainment Resorts.

Donald Trump inni í Trump-turninum.Vísir/Getty
Ekki sammála Forbes um eigið virði

Trump hefur einnig verið í skemmtanabransanum en frá 1996 til 2015 var hann eigandi fegurðarsamkeppnanna Miss Universe, Miss USA og Miss Teen USA.

Árið 2003 var frumsýndur raunveruleikaþáttur hans The Apprentice þar sem þátttakendur kepptust um að hreppa stjórnunarstöðu innan Trump-samsteypunnar.

Trump fór fyrir The Apprentice í fjórtán þáttaröðum og fékk fyrir það 213 milljónir dollara. Samkvæmt Forbes er Trump metinn á 3,4 milljarða dala en Trump sjálfur heldur því fram að virði hans sé 10 milljarðar.

Ivana og Donald Trump árið 1988.Vísir/getty
Kvænst þrisvar

Hann hefur kvænst þrisvar. Sú fyrsta var Ivana Zelnickova, tékknesk íþróttakona og fyrirsæta. Þau áttu saman þrjú börn, Donald yngri, Ivönku og Eric. Þau skildu síðan árið 1990.

Árið 1993 kvæntist Trump Marla Maples en saman eignuðust þau dóttur sem þau nefndu Tiffany. Þau skildu árið 1999. Hann gekk að eiga fyrirsætuna Melania Knauss árið 2005 og eiga þau saman soninn Barron William Trump.

Nærri því 30 ára daður við forsetaembætti

Árið 1987 viðraði Trump fyrst opinberlega þá hugmynd að bjóða sig fram í embætti forseta Bandaríkjanna. Árið 2000 reyndi hann að verða forsetaefni Umbótaflokksins í Bandaríkjunum en dró sig síðar úr baráttunni.

Árið 2008 fór hann fyrir hópi sem vildi meina að Barack Obama hefði ekki fæðst í Bandaríkjunum. Þær fullyrðingar hafa verið hraktar en Obama fæddist á Hawaii.

Trump og Michael Jackson.Vísir/Getty
Trump viðurkenndi síðar meir að það væri ekkert hæft í þeim fullyrðingum að Obama hefði ekki fæðst í Bandaríkjunum.

Í júní í fyrra tilkynnti Trump formlega að hann ætlaði að sækjast eftir því að verða forsetaefni Repúblikanaflokksins.

Hann hlaut þá tilnefningu undir slagorðinu Make America Great Again. Hann lofaði að styrkja bandarískan efnahag, reisa vegg á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó og banna tímabundið múslimum að koma til landsins.

Donald Trump fagnaði sigri í nótt í forsetakosningum Bandaríkjanna.Vísir/Getty
Orðinn forseti þvert á spár

Barátta hans um forsetastólinn var ansi stormakennd, þar sem upptökur af niðrandi ummælum hans í garð kvenna voru gerðar opinberar.

Hann hélt því þó ítrekað fram að hann myndi hafa betur gegn Hillary Clinton, þrátt fyrir að kannanir sýndu annað og fáir þorðu að spá.

Hann hafði hins vegar sigur og verður því fyrsti forseti Bandaríkjanna sem hvorki hefur áður verið kosinn í annað embætti eða þá verið í bandaríska hernum.

Þegar hann verður svarinn í embætti í janúar næstkomandi verður hann 45. forseti Bandaríkjanna.

Hér fyrir neðan má sjá Donald Trump í The Apprentice Hér fyrir neðan má sjá brot úr öllum þáttum og kvikmyndum sem Donald Trump hefur birst í: Hér fyrir neðan má sjá stutta samantekt á lífshlaupi Trump

Tengdar fréttir

Sigurræða Trump í heild sinni

Donald Trump var sigurreifur er hann hélt sigurræðu sína fyrir stuðningsmenn sína á kosningavöku Trump í New York

Hver er Melania Trump?

Melania Trump verður næsta forsetafrú eftir sigur eiginmanns hennar í forsetakosningunum í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×