Íslenski boltinn

Dómurunum haldið í tvo tíma eftir leik

Arnar Björnsson skrifar
Vísir/Andri Marinó
Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH, segir að ástandið eftir leik liðsins gegn Stjörnunni í lokaumferð Pepsi-deildar karla hafi verið alvarlegt.

Stjarnan vann leikinn, 2-1, á marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Fyrra mark Stjörnunnar var einnig umdeilt enda gáfu endursýningar í sjónvarpi í skyn að Ólafur Karl Finsen hafi verið rangstæður þegar hann skoraði.

Halda þurfti aftur af Kassim Doumbia, leikmanni FH, eftir leikinn en hann var afar ósáttur við störf dómarans. Þá veittust áhorfendur að dómaratríóinu og brutu flagg annars aðstoðardómarans.

„Ástandið var rosalegt eftir leikinn, við héldum dómaranum og aðstoðardómurunum í tvo tíma áður en við leyfðum þeim að yfirgefa Kaplakrika“, segir Jón Rúnar í samtali við fréttastofu.

Hann segist bíða úrskurðar aganefndar KSÍ sem fundar á morgun. „Ég býst allt eins við að fá umvöndunarbréf og sekt,“ segir Jón Rúnar.

„Við FH-ingar vildum ekki að leiktímanum yrði breytt m.a. vegna þess að við óttuðumst meiri ölvun og þess vegna yrði miklu erfiðara fyrir okkur að halda mönnum í skefjum, en á okkur var ekki hlustað.“

„Við nefndum það við dómarann fyrir leik að sú staða gæti komið upp að einhver eða einhverjir myndu hlaupa inná völlinn. Við báðum dómarann að ítreka við leikmenn að vera við því búnir og að þeir myndu ekkert aðhafast.“

Jón Rúnar er þungorður í garð annars aðstoðardómarans og segir að hann hafi gert alvarlegt mistök sem hefði kostað sitt. „Þessi sami aðstoðardómari öðlaðist arnar- og þrívíddarsjón þegar liðin mættust í fyrri leiknum, þá skoraði Stjarnan mark sem líkt og á laugardag var ólöglegt.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×