Viðskipti innlent

Dómur fellur í máli Birkis og félaga

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Birkir Kristinsson, Magnús Arnar Arngrímsson, Jóhannes Baldursson og Elmar Svavarsson eru allir ákærðir í málinu.
Birkir Kristinsson, Magnús Arnar Arngrímsson, Jóhannes Baldursson og Elmar Svavarsson eru allir ákærðir í málinu.
Dómsuppkvaðning verður í máli sérstaks saksóknara gegn Birkir Kristinssyni, Elmari Svavarssyni, Jóhannesi Baldurssyni og Magnúsi Arnari Arngímssyni í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Fjórmenningarnir eru ákærðir fyrir umboðssvik, markaðsmisnotkun og brot á lögum um ársreikninga í tengslum við 3,8 milljarða lánveitingu Glitnis til félagsins BK-44 í nóvember 2007.

Birkir, fyrrverandi landsliðsmarkvörður í fótbolta, gegndi stöðu viðskiptastjóra hjá einkabankaþjónustu Glitnis. Jóhannes var framkvæmdastjóri markaðsviðskipta, Elmar var verðbréfamiðlari, og Magnús Arnar var framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs.

Í fyrsta lagi eru Jóhannes, Magnús og Elmar ákærðir fyrir umboðssvik með því að veita BK-44 lánið til að kaupa bréf í bankanum. Bréfin voru keypt aftur af Birki sumarið 2008 á yfirverði, samkvæmt ákæru, og er tjónið af því metið á 1,9 milljarða.

Í öðru lagi eru Elmar og Jóhannes ákærðir fyrir umboðssvik með því að gera „munnlegan samning við ákærða Birki um skaðleysi félags hans“ – að hann gæti ekki tapað á viðskiptunum vegna þess að bréfin yrðu keypt aftur seinna á gamla verðinu óháð markaðsvirði.

Samkvæmt ákærunni fékk Birkir raunar meira en það sem hann hafði fengið að láni til baka og græddi 86 milljónir á viðskiptunum. Í þriðja lið er Elmar ákærður fyrir umboðssvik með því að standa þannig að uppgjöri samningsins.

Í fjórða lið er Birkir ákærður fyrir hlutdeild í umboðssvikunum, en til vara hylmingu og peningaþvætti, „með því að hafa lagt á ráðin með meðákærðu“ um fléttuna. Honum hafi hlotið, sem starfsmanni bankans, að vera ljóst að viðskiptin væru óeðlileg og brytu í bága við reglur bankans.

Í fimmta ákærulið er Jóhannesi, Elmari og Birki gefin að sök markaðsmisnotkun, þar sem viðskiptin hafi byggst á „blekkingum og sýndarmennsku“ og verið líkleg til að gefa markaðnum villandi hugmynd um eftirspurn bréfa í bankanum.

Í síðasta liðnum er Birkir ákærður fyrir „meiriháttar brot gegn ársreikningalögum“ með því að greina ekki að nokkru leyti frá láninu í ársreikningi BK-44 fyrir árið 2007.

Dómur verður kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 14.


Tengdar fréttir

Fjórir ákærðir fyrir lán til Birkis Kristinssonar

Sérstakur saksóknari hefur ákært Birki Kristinsson og þrjá aðra fyrrverandi starfsmenn Glitnis fyrir umboðssvik, markaðsmisnotkun og fleira. Ástæðan er 3,8 milljarða lán til félags í eigu Birkis til kaupa á bréfum í bankanum.

Birkir samdi við slitastjórn Glitnis

Birkir Kristinsson samdi við slitastjórn Glitnis um að endurgreiða tugmilljóna hagnað sinn af hlutabréfaeign í bankanum, sem saksóknari telur ólögmætan. Honum hefur því ekki verið stefnt til greiðslu skaðabóta eins og tveimur öðrum sakborningum.

Kröfu Birkis um frávísun hafnað

Ákæra sérstaks saksóknara á hendur Birki Kristinssyni, í máli kenndu við félag hans, BK-44, stendur óhögguð. Þetta var niðurstaða héraðsdómara í morgun.

Birkir Kristins neitar sök

Er ásamt þremur öðrum fyrrverandi starfsmönnum Glitnis ákærður fyrir umboðssvik, markaðsmisnotkun og brot á lögum um ársreikninga.

Ákærðu enn við störf hjá Íslandsbanka

Þeir Birkir Kristinsson og Elmar Svavarsson, starfa báðir enn hjá Íslandsbanka, þrátt fyrir að þeir hafi verið ákærðir ásamt tveimur öðrum mönnum, fyrir umboðssvik, markaðsmisnotkun og brot á lögum um ársreikninga í tengslum við 3,8 milljarða króna lánveitingu Glitnis til félags í eigu Birkis.

Lárus og Guðmundur segjast ekki hafa samþykkt lánið

Birkir Kristinsson tók 3,8 milljarða lán til að kaupa hlutabréf í Glitni, svo að bankinn gæti gert upp framvirkan samning við Gnúp, sem Birkir átti 28% í. Lárus Welding segist ekki hafa komið nálægt lánveitingunni.

Birkir og Elmar sendir í leyfi

Þeir Birkir Kristinsson og Elmar Svavarsson hafa verið settir í leyfi frá störfum sínum í Íslandsbanka samkvæmt heimildum fréttastofu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×