Innlent

Dómstólar ósammála um greiðslugetu Sindra

Sigurður Mikael Jónsson skrifar
Hæstiréttur taldi ekki ástæðu til að gefa Sindra Sveinssyni afslátt af sakarkostnaði líkt og héraðsdómur.
Hæstiréttur taldi ekki ástæðu til að gefa Sindra Sveinssyni afslátt af sakarkostnaði líkt og héraðsdómur. Vísir/eyþór
Sindri Sveinsson, fyrrverandi starfsmaður eiginfjárfestinga Landsbankans, sem hlaut níu mánaða fangelsisdóm í markaðsmisnotkunarmáli í febrúar 2016, þarf að greiða 22,6 milljónir króna í málskostnað vegna þess máls. Þetta er niðurstaða Hæstaréttar Íslands.

Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði í desember síðastliðnum að lækka upphæð fjárnáms sem gert var hjá Sindra upp á rúmar 22 milljónir króna niður í tvær milljónir. Sindra hafði í markaðsmisnotkunarmáli Landsbankans verið gert að greiða málsvarnarlaun verjanda síns, Reimars Péturssonar.

Laun Reimars voru greidd úr ríkissjóði sem hóf í kjölfarið að krefja Sindra um endurgreiðslu. Sindri kvaðst ekki vera borgunarmaður fyrir upphæðinni og var því farið fram á að upphæðin yrði sótt með aðför en fjárnám reyndist árangurslaust.

Sindri stefndi gerðarbeiðanda, í þessu tilfelli sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, og krafðist þess að krafan yrði lækkuð. Hann héldi látlaust heimili með eiginkonu sinni, greiddi af fasteignalánum en að húsið væri séreign konu hans. Hann væri eignalaus. Í málinu lagði hann fram kaupmála, dagsettan 27. maí 2013, því til sönnunar þar sem hann færði eignarhlut sinn í fasteigninni yfir á eiginkonu sína.

Í dómi Hæstaréttar kemur fram að þegar kaupmálinn var gerður hafi sakamálið verið höfðað á hendur honum rúmum tveimur mánuðum áður. Af þeim sökum hafi sýslumaður getað leitað fullnustu með fjárnámi í hlut fasteignarinnar sem hefði án kaupmálans verið í eigu Sindra.

Hæstiréttur segir að fram hafi komið í gögnum sem Sindri lagði fram að hann hafi um árabil verið með talsverðar tekjur. Ekki hefði verið leitt í ljós að fjárhagur hans væri með því móti að falla bæri frá kröfu á hendur honum um greiðslu sakarkostnaðar. Ekki væri því tilefni til að taka til greina kröfu hans um að fjárnáminu yrði breytt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×