Körfubolti

Dómaranefnd kærði brot Ryan Taylor

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Hér má sjá Hlyn liggja í jörðinni eftir brotið í upptöku Stöðvar 2 Sport af leiknum í gærkvöld.
Hér má sjá Hlyn liggja í jörðinni eftir brotið í upptöku Stöðvar 2 Sport af leiknum í gærkvöld. vísir/skjáskot
Dómaranefnd KKÍ hefur ákveðið í samræmi við dómara leiks ÍR og Stjörnunnar í gærkvöld að kæra atvik sem átti sér stað í þeim leik þar sem Ryan Taylor virtist slá Hlyn Bæringsson í höfuðið.

Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, staðfesti þetta í samtali við Vísi í morgun.

Atvikið átti sér stað í fyrsta leikhluta leiksins og dæmdu dómarar leiksins óíþróttamannslega villu á Taylor. Hrafn Kristjánsson, þjálfari Stjörnunnar, sagði í viðtali eftir leikinn í gær að hann hefði viljað sjá Taylor rekinn úr húsi fyrir brotið.

Hannes sagði dómaranefndina hafa setið yfir þessu fram á kvöld í gær og snemma í morgun og hafi eftir samtöl við dómara leiksins ákveðið að kæra atvikið, en dómaranefndin hefur kæruvaldið í málum sem þessum.

Aga- og úrskurðarnefnd hefur málið nú á sínu borði og fer yfir það. Hannes sagðist vonast eftir því að úrskurður liggi fyrir seinni partinn á morgun, laugardag.

ÍR vann leikinn í gær 67-64 og er með 2-1 forystu í einvígi liðanna í 8-liða úrslitum Domino's deildar karla. Fjórði leikur einvígisins fer fram á sunnudaginn í Garðabænum þar sem ÍR getur komist í undanúrslit.

Ef að Taylor verður dæmdur í bann þarf það að liggja fyrir klukkan 12:00 á sunnudaginn svo bannið taki gildi fyrir leikinn á sunnudagskvöld.


Tengdar fréttir

Hlynur var „kýldur niður:“ Það var tekið upp eitthvað „show“

Mikill hiti var í mönnum í Seljaskóla í kvöld þar sem ÍR og Stjarnan mættust í þriðja leik liðanna í 8-liða úrslitum Domino's deildar karla. ÍR fór með þriggja stiga sigur, 67-64, eftir háspennu leik. Mikil harka var í leiknum og í fyrsta leikhluta átti sér stað atvik þar sem Ryan Taylor, leikmaður ÍR, virðist slá Hlyn Bæringsson hjá Stjörnunni í höfuðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×