Innlent

Dögun vill stjórnarsamstarf með Framsókn og Sjálfstæðisflokki

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Dögun fer meðal annars fram á að verðtrygging verði afnumin á fyrstu viku stjórnarsamstarfs.
Dögun fer meðal annars fram á að verðtrygging verði afnumin á fyrstu viku stjórnarsamstarfs. Mynd/Dögun
Dögun hefur lýst yfir vilja til stjórnarsamstarfs við Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk að loknum kosningum að því gefnu að Dögun fái Fjármálaráðuneyti, Innanríkisráðuneyti og Sjávarútvegsráðuneyti. Þá fara þau einnig fram á að verðtrygging verði afnumin á fyrstu viku stjórnarsamstarfs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Dögun.

Meðfylgjandi tilkynningunni er einnig drög að stjórnarsáttmála sem má lesa hér fyrir neðan.

Ríkisstjórnin leggur áherslu á:

Aðskilnaður ríkis og spillingar.

Með myndun ríkisstjórnar Dögunar, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hefst ný sókn í þágu lands og þjóðar. Tekin verða djörf skref við aðskilnað ríkis og spillingar með stórauknum upplýsingarétti borgaranna með gagnsæi í stjórnsýslu og fjármálakerfi með að lánabækur fjármálafyrirtækja með starfsleyfi verða opnar auk eflingar stofnana sem standa vörð um hagsmuni almennings og komið verði í veg fyrir óeðlileg áhrif sérhagsmuna á regluverk samfélagsins.

Fjármálakerfið fyrir fólkið og fyrirtækin í landinu.

Á fyrstu vikum stjórnarsamstarfs mun ríkisstjórnin leggja fram lagafrumvörp um skipun fjármálkerfisins. Skýr aðskilnaður verður gerður á starfsemi viðskipta og fjárfestingabanka, skýr takmörkun ríkisábyrgðar og lög um hlutafélagabanka / einkabanka endurskoðuð. Lagt verður fram sérstakt lagafrumvarp að þýskri fyrirmynd um starfsemi samfélagsbanka sem kemur í veg fyrir að hægt sé að ræna þeim. Við samþykkt þess frumvarps verður Landsbanki Íslands gerður að samfélagsbanka með breyttri eigendastefnu ríkisins fyrir Landsbanka Íslands.

Skattaumhverfi / Skattaundanskot.

Skattar einstaklinga og fyrirtækja standa undir nauðsynlegri þjónustu við samfélagið allt og markmið ríkistjórnarinnar er að einfalda skattkerfið, breikka skattstofna, minnka tekjutengingar og hækka persónuafslátt.

Á móti leggur ríkisstjórnin sérstaka áherslu á að hamla þunnri eiginfjármögnun fyrtækja með lögum og draga úr skattaundanskotum en til að halda skattaundanskotum innan íslenska hagkerfisins verður Engey gerð að aflandseyju.

Sala og meðferð ríkiseigna

Komi til sölu ríkiseigna skal það gerast fyrir opnum tjöldum og í gagnsæi á öllum stigum söluferlis til að koma í veg fyrir óheppilegar einkavinavæðingar eða gjafadíla á ríkiseignum til óprúttinna undirhyggjumanna.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×