Innlent

Doða tilfinning og tómleiki er hjá skipuleggjendum leitarinnar að Birnu Brjánsdóttur, eftir að hún fannst

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Leitin að Birnu Brjánsdóttur, sem saknað var í átta daga, tók endi í gær, þegar áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar auk leitarmanna frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg, fundu lík Birnu ofarlega í flæðarmálinu rétt vestan við Selvogsvita.

Það var nöturlegt að fylgjast með hvernig Atlantshafi barði á ströndinni við Selvog þegar fréttastofan skoðaði aðstæður á vettvangi í dag.

Eftir að Birna fannst var dregið úr leit og fóru björgunarsveitir að halda til síns heima. Þó tóku um þrjú hundruð björgunarsveitarmenn þátt í áframhaldandi aðgerðum við Selvog þar sem svæðið var fínleitað eftir vísbendingum.

„Við lögðum mikla áherslu á það svæði og svo líka strandlengjuna frá Grindavík og að Eyrarbakka,“ sagði Þorsteinn G. Gunnarsson, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar í dag.

Eins og áður hefur komið fram var leitin um helgina sú umfangsmesta sem Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur ráðist í.

Sjötíu og þrjár björgunarsveitir og fimm slysavarnadeildir tóku þátt í aðgerðum helgarinnar. Átta hundruð sextíu og tveir sjálfboðaliðar unnu ýmis verk. Notast var við tuttugu og eitt fjór- eða sexhjól, sjötíu og fjórar bifreiðar, tólf spor- og leitarhundar og fimmtán dróna. Þá eru ótaldir allir þeir rannsóknarlögreglumenn og lögreglumenn, liðsmenn sérsveitar Ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæslunnar og annarra sem að leitinni komu.

Þrátt fyrir að vel hafi tekist til við leitina hafi sjálfboðaliðar björgunarsveitanna fundið doða, spennufall og sorg þegar haldið var heim á leið.

„Ætli það sé ekki með mig eins og alla aðra sem komu að þessu og hlutur þeirra sem að voru að skipuleggja leitina og leita er miklu meiri en minni, en það er svona doða tilfinning, tómleiki og söknuður. Við hefðum gjarnan viljað að málalyktir yrðu aðrar,“ sagði Þorsteinn.

Margir hafa minnst Birnu síðast liðinn sólarhring og hafa margir deilt á samfélagsmiðlum samúðarkveðjum til fjölskyldu og vina Birnu.

Minningarstund var haldinn í gærkvöldi við Norræna húsið og sömuleiðis á nokkrum stöðum í Grænlandi.

„Ég kenni í brjóst um skyldmennin sem hafa misst dóttur. Sjálf á ég tvö börn á svipuðum aldri og það er sárt að heyra þetta,“ segir Ruth Due Hansen, íbúi á Grænlandi.

Utanríkisráðherra Grænlands sendi Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra samúðarbréf í gærkvöldi en í því kemur fram að hvarf Birnu Brjánsdóttur og tengsl grænlenskra ríkisborgara við atburðina sé mikið sorgarefni. 

Síðdegis í dag sendi svo áhöfnin á Polar Nanoq frá sér tilkynningu þar sem þeir votta fjölskyldu Birnu sína dýpstu samúð og vona að upplýst verði um atburðarásina svo hægt sé að sækja mennina tvo til saka. Þá segjast skipverjar hafa orðið fyrir miklu áfalli sökum atburða síðustu daga og þegið sálræna aðstoð vegna þess. 

Skipulögð hefur verið minningarganga um Birnu Brjánsdóttur næstkomandi laugardag en gengið verður frá Laugarvegi 31, þeim stað þar sem Birna sást síðast í eftirlitsmyndavélum og að Tjörninni þar sem kertum verður fleytt. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×