Körfubolti

Doc Rivers gefur Steve Kerr ráð: Ekki reita Russell til reiði

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Steve Kerr og Doc Rivers.
Steve Kerr og Doc Rivers. Vísir/AFP
Doc Rivers þekkir það vel að stýra liði í Stjörnuleik NBA-deildarinnar og ef hann ætti að gefa Steve Kerr, þjálfara Golden State Warriors og liði Vesturdeildarinnar í Stjörnuleiknum á sunnudagskvöldið gott ráð þá væri það að hætta að hugsa um halda sínum leikmönnum ánægðum í Stjörnuleiknum.

Rivers hefur nú sagt frá því að hans hernaðaráætlun í Stjörnuleikjum hafi verið að passa upp á það að þeir leikmenn, sem gætu möguleika unnið hann í komandi úrslitakeppni, væru ánægður með sitt hlutskipti í Stjörnuleiknum.

„Ég passaði upp á það að þeir elskuðu mig, það er hinir leikmennirnir,“ sagði Doc Rivers, núverandi þjálfari Los Angeles Clippers. „Ég vissi að mínir menn elskuðu mig og ég þurfti því ekki að hafa áhyggjur af því,“ sagði Rivers. ESPN segir frá.

Ráð Rivers eru því að halda mönnum eins og Russell Westbrook ánægðum. Golden State Warriors hefur reyndar unnið Oklahoma City Thunder þrisvar sinnum í vetur og það þótt að Westbrook hafi skilað frábærum tölum.  Það er samt alltaf hættulegt að reita Russell til reiði enda spilar hann nógu reiður fyrir.

Steve Kerr er með fjóra leikmenn Golden State Warriors í liði Vesturdeildarinnar og hann ætlar sér að setja þá alla fjóra saman inná völlinn á einhverjum tímapunkti. Kevin Durant, Stephen Curry, Klay Thompson og Draymond Green verða því inná með einhverjum einum öðrum, kannski bara Russell Westbrook. Hver vildi ekki sjá þá fimm saman.

Doc Rivers sagði líka frá því að hann hafi rætt við leikmenn síns liðs í Stjörnuleiknum og spurt þá út í þeirra væntingar til komandi leiks.   „Ég vildi ekki lenda í því að mæta manni í næsta leik sem væri staðráðinn í að skora 50 stig á mitt lið. Ég var því góður í því að fara til manna og spyrja þá hreint út hvað þeir vildu spila mikið í Stjörnuleiknum,“ sagði Doc Rivers.

Stjörnuleikur NBA-deildarinnar fer fram í New Orleans á sunnudagskvöldið kemur en hann verður að venju í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×