Sport

Djokovic segir Federer vera besta tennisspilara sögunnar

Hvor mun fagna sigri í dag, Roger Federer eða Novak Djokovic?
Hvor mun fagna sigri í dag, Roger Federer eða Novak Djokovic? vísir/getty
Í dag mætast tveir bestu tennisspilarar heims, Novak Djokovic og Roger Federer, í úrslitaviðureign Wimbledon mótsins en þeir mættust einnig í úrslitaleiknum í fyrra.

Þá hafði Djokovic betur í frábærum leik sem stóð yfir í tæpar fjórar klukkustundir. Það var annar sigur Djokovic á Wimbledon en Federer hefur unnið þetta mót sjö sinnum, síðast árið 2012.

Með sigri getur Federer orðið elsti sigurvegar Wimbledon mótsins í atvinnumannaflokki. Hann er 34 ára og er að leika sinn tíunda úrslitaleik á Wimbledon.

Federer hefur verið í frábæru formi á þessu móti og aðeins tapað einu setti og sýndi heimamanninum Andy Murray í tvo heimana í undanúrslitum þegar hann sópaði Murray út í þremur settum.

"Ég þarf að halda þessu formi áfram í einn leik í viðbót til að fullkomna síðustu tvær vikur," segir Federer en aðeins Pete Sampras hefur unnið Wimbledon mótið oftar sem atvinnumaður eða 8 sinnum.

Ef Djokovic vinnur mun hann jafna þjálfara sinn, Boris Becker, í sigrum á Wimbledon mótinu. En það er augljóst á tali hans í aðdraganda leiksins í dag að Djokovic ber mikla virðingu fyrir Federer.

"Hér elskar hann [Federer] að spila. Hér spilar hann sinn besta leik. Aðalvöllurinn á Wimbledon, sjö titlar. Þetta er hans völlur. Hann elskar hann," segir Djokovic um andstæðing sinn í dag.

"Hann spilar alltaf best þegar mest reynir á. Þess vegna er hann stórmeistari. Við vitum öll hve góður hann er. Hann er besti spilari sögunnar. Það er erfitt að finna nógu sterk orð til að lýsa afrekum hans," segir Djokovic ennfremur um Federer.

Leikur þeirra félaga hefst kl. 13:00 í dag og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×