Sport

Djokovic í undanúrslit á 25. risamótinu á ferlinum | "Áfram pabbi“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Novak Djokovic.
Novak Djokovic. Vísir/Getty
Novak Djokovic er kominn alla leið í undanúrslitin á opna ástralska mótinu í tennis en hann hefur ekki enn tapað einu einasta setti á fyrsta risamóti ársins.

Novak Djokovic vann Kanadamanninn Milos Raonic 7-6 6-4 og 6-2 í átta manna úrslitum í dag og mætir Svisslendingnum Stan Wawrinka í undanúrslitum. Í hinum undanúrslitaleiknum mætast síðan Tékkinn Tomás Berdych og Bretinn Andy Murray.

Novak Djokovic hefur unnið alla fimm leiki sína á mótinu án þess að tapa setti sem þýðir að hann er búinn að vinna fimmtán sett í röð. Annars unnust allir leikirnir í átta manna úrslitunum 3-0 í ár.

Novak Djokovic datt út í átta manna úrslitum á opna ástralska mótinu í fyrra en hafði þá unnið mótið þrjú ár í röð. Tapið í átta manna úrslitunum fyrir ári síðan er eina risamótið frá því í júní 2010 þar sem Serbinn hefur ekki verið í fjögurra manna úrslitum.

Novak Djokovic er nú kominn í undanúrslit á 25. risamótinu á ferlinum en vinni hann  Stan Wawrinka kemst hann í úrslitaleik risamóts í fimmtánda sinn.

Novak Djokovic og kona hans Jelena Ristić, eignuðust soninn  Stefan í október og hún birti mynd á twitter af stráknum að horfa á pabba sinn tryggja sig inn í undanúrslitin.  Undir myndinni skrifaði hún: „Áfram pabbi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×