Sport

Djokovic eyðilagði ævintýri Edmund

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Djokovic fagnar í nótt.
Djokovic fagnar í nótt. vísir/getty
Bretinn Kyle Edmund er úr leik á US Open tennismótinu en besti tennismaður heims var hindrunin sem hann komst ekki yfir.

Edmund, sem er í 84. sæti á heimslistanum, var búinn að slá út tvo af sterkustu spilurum mótsins og komast í 16-manna úrslit. Þá sagði Djokovic hingað og ekki lengra.

Djokovic lagði Edmund í þrem settum, 6-2, 6-1 og 6-4. Djokovic mætir Frakkanum Jo-Wilfried Tsonga í næstu umferð.

Djokovic á titil að verja og hann er að elta sinn þriðja sigur á stórmóti á árinu. Hann hefur þegar unnið tólf risamót á ferlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×