Bíó og sjónvarp

Disney sviptir hulunni af magnaðri tengingu allra Pixar myndanna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rosalegar tengingar.
Rosalegar tengingar.
Disney Pixar deildi merkilegu myndbandi í gegnum Facebook síðu Toy Story fyrir nokkrum dögum.

Í myndbandinu má sjá hvernig allar Pixar myndirnar tengjast á ótrúlegan hátt. Pixar myndirnar eru margverðlaunaðar og sérstakar en notast er við ákveðinn tölvuteiknistíl í þeim.

Myndir á borð við Toy Story, Cars, Leitin að Nemó og margar aðrar fleiri þekktar teiknimyndir. Allar þessar myndir hafa ákveðna tengingu sem sumir netverjar hafa tekið eftir undanfarin ár og lengi hafa verið kenningar um, en aldrei fengist staðfest.

Núna hefur fyrirtækið komið fram með myndband sem allir verða að sjá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×