Bíó og sjónvarp

Disney gerir nýja Lion King mynd

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Hluti persónanna úr fyrstu myndinni verður til staðar í þeirri nýju.
Hluti persónanna úr fyrstu myndinni verður til staðar í þeirri nýju. mynd/disney
Aðdáendur Lion King geta fagnað því á næstunni munu þeir geta fylgst með ævintýrum fleiri afkvæma Simba. Í nóvember verður saga Kion, sonar Simba og Nölu, sögð á Disney Channel. 

Myndin kemur til með að heita The Lion Guard: Return of the Roar og verður fylgt eftir með sjónvarpsþáttaröðinni The Lion Guard sem verður sýnd á sömu stöð.

Nokkrir nýir vinir af sléttunni munu líta dagsins ljós en þar má nefna hegrann Ono, blettatígurinn Fuli og flóðhestinn Beshte. Staðfest er að James Earl Jones og Ernie Sabella munu tala inn á myndina sem þýðir að Múfasa og Púmba mun bregða fyrir. Hins vegar er ekkert vitað hvort Nathan Lane kemur að myndinni og veldur það talsverðri óvissu um hvort Tímon verði með eður ei.

Fyrsta Lion King myndin kom út árið 1994 og hefur glatt börn og fullorða allar götur síðan. Tvær myndir hafa fylgt í kjölfarið. Sú fyrri kom út árið 1998 en síðari árið 2004.

Fyrsta sýnishornið úr nýju myndinni má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×