Lífið

Disney birtir fyrstu myndina af hinni nýju Mary Poppins

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Emily Blunt fer með hlutverk Mary Poppins í nýrri mynd.
Emily Blunt fer með hlutverk Mary Poppins í nýrri mynd. Vísir/Getty
Breska leikkonan Emily Blunt fer með hlutverk hinnar goðsagnakenndu Mary Poppins í kvikmyndinni Mary Poppins Returns, eða Mary Poppins snýr aftur, sem væntanleg er í lok árs.

Í myndinni eru Jane og Michael Banks orðin fullorðin og fá heimsókn frá sinni gömlu fóstru Mary Poppins eftir áfall í fjölskyldunni.

Emily Blunt fetar í fótspor Julie Andrews í myndinni og hefur mikil leynd verið yfir henni hingað til. Nú hefur Disney hins vegar birt fyrstu myndina af Blunt í gervi Poppins.

Ásamt Blunt skartar myndin einvala liði leikara. Pulitzer verðlaunahafinn Lin-Manuel Miranda mun fara með hlutverk Jack, sem er talið að sé hliðstæða Bertie úr upprunalegu myndinni. Dick Van Dyke, sem lék Bertie, mun einnig birtast í nýju myndinni ásamt Colin Firht, Angelu Lansbury, Meryl Streep og Julie Walters.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×