Tónlist

Diskósmellur ársins fæddur?

Tónlistargoðsögnin Nile Rodgers hefur sent frá sér nýjan diskósmell sem ber nafnið Do What You Wanna Do. Eins og flestir vita ber Rodgers ábyrgð á ansi mörgum slögurum en hann gerði meðal annars allt vitlaust með aðkomu sinni að Daft Punk plötunni nýju, Random Access Memories. 

Nýja lagið var tekið upp á Ibiza síðasta sumar og var upphaflega samið fyrir We Are Family góðgerðarsamtökin sem Rodgers stofnaði. Þá hefur Rodgers einnig tjáð sig um að hljómsveitin hans, Chic vinni nú að nýju efni en hann hefur unnið hvern sigurinn að fætur öðrum enda fagmaður fram í fingurgóma.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×