Diouf fékk ađallega tćkifćri međ United í deildabikarnum.
Nordic Photos / Getty Images
Kolbeinn Tumi Dađason skrifar:
Framherjinn Mame Biram Diouf hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við Hannover 96 í Þýskalandi. Diouf hefur verið á mála hjá Manchester United undanfarin misseri en fengið fá tækifæri.
„Ég er ánægður með þá möguleika sem Diouf gefur okkur í sóknarleiknum," sagði Mirko Slomka, knattspyrnustjóri Hannover.
„Við þurfum að hjálpa honum að aðlagast sem fyrst svo hann geti hjálpað okkur í leikjunum sem framundan eru í deildinni og Evrópudeildinni," bætti Slomka við.
Diouf gekk til liðs við United frá Molde árið 2009 en hann var funheitur í norska boltanum. Honum tókst aldrei að stimpla sig inn í lið United og varði mestum hluta síðasta tímabils á láni hjá Blackburn.