Enski boltinn

Diouf hetja Stoke á Etihad

Anton Ingi Leifsson skrifar
Diouf var hetja Stoke.
Diouf var hetja Stoke. Vísir/Getty
Stoke City vann afar óvæntan sigur á Etihad þegar liðið sigraði Englandsmeistarana í Manchester City. Mame Biram Diouf skoraði eina mark leiksins.

Staðan var markalaus í hálfleik, en Mame Biram Diouf skoraði fyrsta og eina mark leiksins eftir tæpan klukkutíma. Hann hljóp þá með boltann upp allan völlinn nánast og lagði svo boltann milli fóta Joe Hart sem átti þó að gera betur.

Þannig urðu lokatölur, en þetta verður að teljast afar óvænt úrsilt og reiðarslag fyrir Manuel Pellegrini og lærisveina hans í City.

Hér fyrir neðan birtast sjálfkrafa allar helstu upplýsingar um framvindu leiksins sem og leikmannahópa liðanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×