Glamour

Dior bauð í lestarferð og kastalaheimsókn

Ritstjórn skrifar
Vatnsgreitt hár og svartur skuggi á pallinum hjá Dior. Í miðjunni má sjá Bellu Hadid.
Vatnsgreitt hár og svartur skuggi á pallinum hjá Dior. Í miðjunni má sjá Bellu Hadid. Glamour/Getty
Franska tískuhúsið Dior var ekki beint að spara þegar Resort 2017 línan var sýnd í Blenheim kastalanum í Oxfordshire, Englandi. Sýningin var á sama tíma og ný verslun Dior opnaði á Bond Street í London. 

Þetta mun ekki hafa verið í fyrsta skiptið sem að Dior sýnir í þessum sögufræga kastala. Árin 1954 og 1958 voru tískusýningar Dior haldnar þar en þá voru engir aðrir en Christian Dior og Yves Saint Laurent hönnuðir tískuhússins. 

Gestum sýningarinnar var í byrjun dags boðið á bar í London sem verður aðeins opinn í einn dag og kallast The Lady Dior. Þaðan voru gestirnir fluttir með lest að kastalanum en um borð var boðið upp á te og ýmsar girnilegar veitingar. Þegar komið var á áfangastað var móttaka þar sem boðið var upp á kampavín og jarðaber áður en að sýningin hófst. 

Það má segja að umgjörðun í kringum sýninguna hafi skyggt á sýninguna sjálfa en samt sem áður var hún vel heppnuð og hefur fengið góðar móttökur. 

Mikið var um einföld en kvenleg snið, ljósa liti í bland við svart og blómamunstur. 





Glamour/Getty





×