Gagnrýni

Dinnertónlist sem átti ekki við

Jónas Sen skrifar
Jón Sigurðsson píanóleikari.
Jón Sigurðsson píanóleikari.
Tónlist

Jón Sigurðsson lék verk eftir Skrjabín í Norræna húsinu miðvikudaginn 14. október.



Það var hálfpartinn undarlegt að fólk hafi ekki verið að gæða sér á veitingum í tónleikasalnum í Norræna húsinu á miðvikudagskvöldið. Þarna voru tónleikar og á dagskránni var eingöngu músík eftir rússneska tónskáldið Alexander Skrjabín (1872-1915). Megnið af verkum hans er þrungið ástríðum, í þeim eru átök, stundum ofsafengin. En Jón Sigurðsson, sem lék á píanó, bar þau yfirleitt ekki fram ­þannig. Hann spilaði Skrjabín eins og dinner­tónlist.

Vissulega voru á efnisskránni fínlegar tónsmíðar, stuttar og draumkenndar. En í slíku tilfelli þarf líka að móta laglínurnar og öll blæbrigðin. Túlkunin þarf að koma skáldskapnum til skila, sama hversu lágstemmdur hann er.

Fjórar prelúdíur op. 22 í byrjun voru stefnulausar, og fyrir bragðið var eins og þær kæmu manni ekki við. Það var ekki heldur neinn léttleiki í dansinum, masúrkanum op. 25 nr. 5. Smáverk op. 31 og 32 voru pínlega flatneskjuleg. Svipaða sögu er að segja um aðrar stuttar tónsmíðar á efnisskránni. Jafnvel um Vers la flamme, Til móts við logann, sem endar á ærandi sprengingu. Sprengingin hjá Jóni var meira í ætt við litla knallettu.

Tvær sónötur, nr. 2 og 5 voru sömuleiðis ekki ásættanlegar. Rólegir kaflar voru loðnir og litlausir. Kraftmeiri, hraðari hlutar voru morandi í hnökrum.

Jón er þó ekki slæmur píanóleikari. Hann hefur tækni og ber sig vel við píanóið. Það sem helst virtist há honum á tónleikunum var taugaóstyrkur. Feilnótur voru óteljandi. Hann var sífellt að ruglast og fara út af, byrja upp á nýtt, o.s.frv. Enda lék hann allt utanað, sem ég held að hafi verið mistök. Að halda heila einleikstónleika og leika dagskrána utanbókar er þrekvirki. Það er aðeins á færi listamanns sem er rútíneraður í að koma fram, heldur hundrað tónleika á ári eða svo. Nei, Jón hefði átt að hafa nótnabók fyrir framan sig. Skrjabín átti betra skilið.

Niðurstaða: Afar slæmir tónleikar sem einkenndust af feilnótum, minnisgloppum og ómótaðri túlkun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×