Tónlist

Dimma og Bubbi spila pönk saman

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Gamla pönktónlist Bubba var mikill áhrifavaldur fyrir sveitina.
Gamla pönktónlist Bubba var mikill áhrifavaldur fyrir sveitina. mynd/spessi
„Þetta voru áhrifavaldar hjá okkur, það er ekki spurning,“ segir Ingó Geirdal, söngvari Dimmu, en sveitin mun troða upp ásamt Bubba Morthens í Hörpunni í mars og flytja plöturnar Geislavirkir með Utangarðsmönnum og Lily Marlene með Das Kapital, gömlum pönksveitum Bubba.

„Ég og Silli Geirdal, bróðir minn og bassaleikari Dimmu, vorum fremst á einum fyrstu tónleikum Egós á Lækjartorgi árið 1982 sem teknir voru upp fyrir Rokk í Reykjavík. Ég náði aldrei að sjá Utangarðsmenn á tónleikum en ég sá Egó oft og Das Kapital líka. Ég myndi segja að þetta hafi verið fyrstu rokkhljómsveitir Íslands sem manni fannst hættulegar, menn voru reiðir og með meiningar. Textarnir voru sterkir og það var kraftur í þeim,“ segir Ingó.

„Það var mikið talað um að fólk vissi ekki við hverju maður mætti búast á Utangarðsmanna-tónleikum, þeir jafnvel slógust á sviði.“

Þarna fær Bubbi líka einstakt tækifæri til að syngja lög sem hann hefur ekki sungið síðan á níunda áratugnum en að sögn Ingós verður Dimmu-keimur yfir lögunum. „Það var hugmynd Bubba að gera það þannig,“ segir hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×