Enski boltinn

Diego Costa skoraði í sigri Chelsea

Anton Ingi Leifsson skrifar
Vísir/Getty
Diego Costa skoraði sitt fyrsta mark fyrir Chelsea í 2-1 sigri á Ol Ljubljana í dag.

Slóvenska liðið komst yfir með marki Nik Kapun rétt fyrir hálfleik. Diego Costa jafnaði metin á 57. mínútu með sínu fyrsta marki fyrir Chelsea, en hann gekk í raðir Lundúnarliðsins í sumar frá Atletico Madrid.

Kurt Zouma, ungur og efnilegur leikmaður, tryggði svo Chelsea sigur rúmum tuttugu mínútum fyrir leikslok og lokatölur 2-1.

Byrjunarlið Chelsea: Delac; Azpilicueta, Cahill, Zouma, Luis; Matic, Fabregas; Salah, Boga, Brown; Costa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×