Enski boltinn

Diego Costa nefbrotnaði á æfingu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Diego Costa, framherji Chelsea.
Diego Costa, framherji Chelsea. vísir/getty
Guus Hiddink, knattspyrnustjóri Chelsea, tilkynnti á blaðamannafundi í gær að Diego Costa hefði nefbrotnað á æfingu liðsins.

Chelsea mætir Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni í dag en Costa varð fyrir óhappinu eftir samstuð við samherja sinn á æfingunni.

Hiddink taldi reyndar mjög líklegt að Costa yrði í liðinu í dag, og yrði hann þá mér sérstaka grímu.

„Við erum lið með fullt af grímum, Einskonar Zorro-lið,“ sagði Hiddkink en hann en Cesar Azpilicueta leikur einnig með grímu þessa dagana. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×