Fótbolti

Diego Costa, Juan Mata og Fernando Torres úti í kuldanum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fernando Torres fagnar sigri á EM 2012 með fjölskyldu sinni.
Fernando Torres fagnar sigri á EM 2012 með fjölskyldu sinni. Vísir/Getty
Vicente del Bosque, landsliðsþjálfari Spánverjar, hefur gefið út hvaða 25 leikmenn verða í æfingahóp hans fyrir Evrópumótið í Frakklandi sem hefst eftir 24 daga.

Del Bosque valdi tvo aukamenn í hópinn en aðeins 23 leikmenn mega vera í lokahóp þjóðanna á Evrópumótinu. Del Bosque þarf að tilkynna lokahópinn inn fyrir 31. maí.

Það vekur vissulega mestu athyglina að Diego Costa, framherji Chelsea, Fernando Torres, framherji Atlético Madrid og Juan Mata, miðjumaður Manchester United eru allir út í kuldanum og fá ekki að vera með á EM.

Fernando Torres hefur verið fastamaður hjá Atlético Madrid en hann hefur skorað í síðustu tveimur úrslitaleikjum EM þar sem Spánverjar hafa fagnað sigri í bæði skiptin.

Diego Costa er að glíma við meiðsli og það hafði örugglega mikil áhrif á það af hverju hann er ekki með.

Það eru tveir nýliðar í hópnum eða þeir Saúl hjá Atlético Madrid og Lucas Vázquez hjá Real Madrid. Saúl ssló í gegn með Atlético Madrid í Meistaradeildinni og skoraði meðal annars magnað mark eftir mikið einstaklingsframtak í fyrri leiknum á móti Bayern München.

Menn eins og þeir Bruno hjá Villarreal, Mikel San José hjá Athletic Bilbao og Aritz Aduriz hjá Athletic Bilbao eru heldur ekki búnir að spila marga landsleiki fyrir Spán.

Spánverjar spila sinn fyrsta leik á mótinu á móti Tékkum 13. júní en fram að því mæta þeir Frakklandi (29. maí), Bosníu (1. júní) og Suður-Kóreu (7. júní) í vináttulandsleikjum.



25 manna æfingahópur Spánverja fyrir EM 2016:

Markverðir

Iker Casillas (Oporto)

David de Gea (Manchester United)

Sergio Rico (Sevilla)

Varnarmenn

Dani Carvajal (Real Madrid)

Juanfran (Atlético)

Gerard Piqué (Barcelona)

Sergio Ramos (Real Madrid)

Marc Bartra (Barcelona)

Jordi Alba (Barcelona)

César Azpilicueta (Chelsea)

Miðjumenn

Mikel San José (Athletic)

Bruno (Villarreal)

Koke (Atlético)

Saúl (Atlético)

Thiago (Bayern)

Silva (Manchester City)

Lucas Vázquez (Real Madrid)

Sergio Busquets (Barcelona)

Cesc Fàbregas (Chelsea)

Andrés Iniesta (Barcelona)

Isco (Real Madrid)

Sóknarmenn

Nolito (Celta)

Pedro (Chelsea)

Álvaro Morata (Juventus)

Aritz Aduriz (Athletic)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×