Sport

Diaz hræddi stuðningsmenn Conor

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Spjallþáttastjórnandinn Jimmy Kimmel fékk bardagakappann Nate Diaz til að taka þátt í frábæru atriði í vikunni.

Þá fór maður á vegum Kimmel út á götu til þess að tala við stuðningsmenn Conor McGregor. Þar spáðu þeir Conor sigri gegn Diaz síðar í mánuðinum.

Á meðan þeir voru að tala vel um Conor þá læddist Diaz aftan að þeim. Óhætt er að segja að viðbrögð viðmælendanna hafi verið stórkostleg.

Atriðið má sjá hér að ofan.

Bardagi þeirra fer svo fram þann 20. ágúst og verður í beinni á Stöð 2 Sport.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×