Sport

Diaz: Conor og Alvarez eru hræddir við mig

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Diaz í seinni bardaganum gegn Conor.
Diaz í seinni bardaganum gegn Conor. vísir/getty
Það eru flestir mjög spenntir fyrir bardaga Conor McGregor og Eddie Alvarez en Nate Diaz er ekki einn þeirra.

Diaz gaf skít í allt og alla er hann frétti af því að þeir myndu berjast um léttvigtarbelti UFC.

„Til fjandans með þá báða. Þessar litlu tíkur eru báðar hræddar að berjast við mig. Þess vegna eru þeir að fara að berjast,“ sagði Diaz reiður og var ekki hættur. „Segið Dana svo að hætta að hanga á pungnum á Conor.“

Diaz barðist í tvígang við Conor. Vann fyrri bardagann en tapaði þeim síðari á dögunum. Ekki liggur fyrir hvað hann gerir næst.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×