Glamour

Diane Kruger sjóðheit í Dior

Ritstjórn skrifar
Stórglæsileg Kruger.
Stórglæsileg Kruger. Myndir/Getty
Í gær fór fram tískusýning Dior á Haute Couture vikunni í París, eða hátískuvikunni. Leikkonan Diane Kruger lét sig ekki vanta þar enda er hún fastagestur á fremsta bekk helstu tískusýninga heims. 

Diane mætti í svörtum kjól úr smiðju Dior. Kjóllinn er tekinn saman í miðjunni með ísaumuðu kortiletti sem gefur heildarútlitinu fínt en rokkaralegt yfirbragð. Rakt hárið tekið til hliðar var punkturinn yfir i-ið og sýndi hversu mikil bomba Diane er í raun og veru. 





Töffaraleg, eins og alltaf.





×