Enski boltinn

Di Maria var áfram hjá Real út af Ronaldo

Di Maria og Ronaldo eru vinir.
Di Maria og Ronaldo eru vinir. vísir/getty
Angel di Maria hefur yfirgefið Real Madrid en það munaði litlu að hann hefði farið frá félaginu fyrir rúmu ári.

Man. Utd keypti hann á dögunum en sumarið 2013 var hann á förum. Hann hætti þó við að fara þar sem Cristiano Ronaldo bað hann um það.

"Samband okkar Ronaldo er frábært og það er út af honum sem ég spilaði með félaginu í fyrra," sagði Di Maria.

"Ég kvaddi Real á viðeigandi hátt. Ég er þakklátur Man. Utd fyrir að hafa keypt mig en finnst ekki vera nein sérstök pressa á mér þó svo ég sé dýrasti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar.

"Það er meira um átök í enska boltanum en meiri fótbolti á Spáni. Van Gaal hefur beðið mig um að reyna að aðlagast nýjum bolta eins fljótt og hægt er."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×