Fótbolti

Di Maria valinn besti leikmaður Argentínu

Messi og Di Maria fagna á HM síðasta sumar.
Messi og Di Maria fagna á HM síðasta sumar. vísir/getty
Angel di Maria hafði betur gegn Lionel Messi í kjöri íþróttafréttamanna í Argentínu á besta leikmanni landsins.

Kjörið er reyndar eingöngu fyrir þá Argentínumenn sem leika utan heimalandsins en það eru nánast allir bestu leikmenn þjóðarinnar.

Messi er einstakur knattspyrnumaður en Di Maria átti líka frábært ár þó svo eðlilegt sé að efast um hvort það sé betra en hjá Messi.

Di Maria var lykilmaður hjá Real Madrid sem vann Meistaradeildina í maí og var öflugur í þeim leikjum á HM sem hann gat spilað. Hann missti af úrslitaleiknum og munaði um minna. Hann hefur svo spilað vel með Man. Utd.

Messi var búinn að hreppa þessa nafnbót allar götur síðan 2006. Lucas Pratto, leikmaður Velez Sarsfield, var valinn besti leikmaður argentínsku deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×