Fótbolti

Di Maria gæti náð úrslitaleiknum

Angel di Maria.
Angel di Maria. vísir/getty
Argentínski vængmaðurinn Angel di Maria er í miklu kappi við tímann en hann ætlar að reyna að ná úrslitaleik HM á sunnudag.

Þessi magnaði leikmaður Real Madrid er meiddur á læri og gat ekki spilað með Argentínu í undanúrslitaleiknum gegn Hollandi.

Talsmaður argentínska landsliðsins, Andres Ventura, segir að Di Maria sé að æfa á svona 60-80 prósent hraða með liðinu og að læknar liðsins muni ekki taka ákvörðun um þáttöku hans í úrslitaleiknum fyrr en á sunnudag.

Argentínska liðið saknaði hans sárt gegn Hollandi. Stöðu hans tók Enzo Perez. Sá var duglegur en langt frá því að vera með sömu gæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×