Viðskipti erlent

Deutsche hagnast þrátt fyrir erfiðleika

Sæunn Gísladóttir skrifar
Deutsche Bank hagnaðist um 278 milljónir evra, jafnvirði 34,6 milljarða íslenskra króna, á þriðja ársfjórðungi.
Deutsche Bank hagnaðist um 278 milljónir evra, jafnvirði 34,6 milljarða íslenskra króna, á þriðja ársfjórðungi. Vísir/Getty
Þýski bankarisinn Deutsche Bank hagnaðist um 278 milljónir evra, jafnvirði 34,6 milljarða íslenskra króna, á þriðja ársfjórðungi. Um var að ræða verulegan viðsnúning en á sama tímabili í fyrra tapaði bankinn 6 milljörðum evra, 746 milljörðum króna.

Eins og Vísir hefur greint frá hefur Deutsche Bank átt í miklum rekstrarerfiðleikum síðastliðið árið. Forsvarsmenn Deutsche Bank segja að erfitt vaxtaumhverfi og áhrif af himinhárri sekt bandarískra stjórnvalda á hendur bankans hafi haft áhrif á reksturinn. Enn á eftir að semja um endanlega upphæð sektarinnar, en fyrst var tilkynnt um 14 milljarða dollara sekt, jafnvirði 1.600 milljarða króna.

Bankinn hefur verið að skera niður rekstrarkostnað sem og að selja eigur til að róa fjárfesta. Sala jókst um 2 prósent hjá Deutsche á fjórðungnum og nam 7,6 milljörðum evra, jafnvirði íslenskra króna, á fjórðungnum. Þetta var betra en fjárfestar áttu von á.​

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×