Lífið

Det glæder mig meget, Helle

Jakob Bjarnar skrifar
Sigmundur Davíð og Hella Thorning-Schmidt; som er en superfin gelle.
Sigmundur Davíð og Hella Thorning-Schmidt; som er en superfin gelle.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherrra fundaði í morgun með Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur, í Kaupmannahöfn. Fleygast frá þeim fundi hefur orðið það að Sigmundur hrósaði Helle sérstaklega fyrir góða dönskukunnáttu. Eru skiptar skoðanir um þessa gullhamra íslenska forsætisráðherrans á samskiptamiðlum og sitt sýnist hverjum. En, elskulegheit og hin djörfu hrósyrði urðu Gísla Ásgeirssyni þýðanda tilefni til að setja saman limru. Gísli kynnir hana til sögunnar með þessum hætti á Facebook-síðu sinni:
 
"Vísu dagsins kastaði forsætisráðherra fram við blaðamenn að loknum fundi með Helle Thorning -Schmidt.

Det glæder mig meget, Helle,

at möde dig her og spjelle

du taler sá flot

að jeg forstár dig godt

sá er du en superfin gelle."





Fleiri fréttir

Sjá meira


×