Lífið

Dennis Rodman býður Seth Rogen til Norður Kóreu

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Rodman vill fara með Rogen til Norður Kóreu
Rodman vill fara með Rogen til Norður Kóreu Vísir/Getty
Körfuboltakappinn litríki, Dennis Rodman, vill kynna Seth Rogen fyrir Norður Kóreu. Rodman segist jafnframt ekki trúa því að tölvuárás sem gerð var á Sony hafi verið skipulögð af stjórnvöldum í Norður Kóreu.

Eins og margir vita hefur kvikmynd sem Rogen leikstýrði, sem ber titilinn The Interview, nánast orðið valdur af milliríkjadeilu. Kvikmyndin fjallar um tvo blaðamenn sem er fyrirskipað að ráða Kim Jong-un af dögum.

Myndin vakti reiði stjórnvalda í Norður Kóreu. Í sumar gáfu þau út hótun; aðgerðum sem myndu draga dilk á eftir á sér. Þegar tölvuárás var gerð á Sony Pictures töldu margir að stjórnvöld Norður Kóreu hefðu verið þátttakendur.

Rodman, sem er persónulegur vinur Kim Jong-un, telur það algjörlega útilokað. „Hversu margar kvikmyndir hafa verið gerðar sem sýna Norður Kóreu í neikvæðu ljósi?" spurði hann.

Rodman er sjálfur að gera kvikmynd um heimsókn sína til landsins, en hann heimsótti Norður Kóreu með körfuboltalið með sér. Rodman segir að hann hafi fengið boð um að aðstoða Rogen og félaga við gerð The Interview. Hann hafi ekki á heimangengt þegar boðið kom og þegar hann átti kost á að hitta aðstandendur myndarinn var vinnslu myndarinnar lokið.

„Fyrst hugsaði maður að það væri flott að þeir væru að gera gamanmynd um Norður Kóreu. Ég hugsaði bara: Kúl, Kúl Kúl. En svo fer fattar maður að myndin snýst um að drepa leiðtogann. Það er bara ekkert fyndið. Bara ekkert," sagði hann í viðtalinu.

Rodman vonast til þess að geta tekið Rogen með sér til Norður Kóreu. „Ég hefði viljað geta tekið hann til Norður Kóreu og sýnt honum hvernig landið er í raun og veru. Hvernig hlutirnir gangi fyrir sig. Ég hefði viljað fara áður en hann gerði myndina. En ég er til í að fara með hann þangað núna. Síðan gætu þeir tekið viðtal við mig og ég gæti sagt þeim hvað mér finnst um myndina þeirra."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×