Lífið

Dennis Rodman býður Kanye West til Norður-Kóreu

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Dennis Rodman hefur boðið rapparanum Kanye West í ferð til Norður-Kóreu. Hann telur að West myndi kunna vel að meta landið.
Dennis Rodman hefur boðið rapparanum Kanye West í ferð til Norður-Kóreu. Hann telur að West myndi kunna vel að meta landið. vísir/afp
Fyrrverandi körfuboltaleikmaðurinn Dennis Rodman hefur boðið rapparanum Kanye West til Norður-Kóreu. Hann vill kynna West fyrir lífinu í Norður-Kóreu og fyrir Kim Jong Un, leiðtoga landsins. Þannig gæti West samið tónlist um landið leyndardómsfulla.

Rodman, sem er orðinn 57 ára, er gamall vinur hins Norður-Kóreska leiðtoga. Hann er á meðal fárra Vesturlandabúa sem hefur verið boðið til fundar leiðtogans.

Rodman segir í viðtali við US Weekly að Kim beri virðingu fyrir sér og sýni sjónarmiðum sínum skilning. Hann segist þá vera mikill aðdáandi tónlistar Kanye West og beri auk þess mikla virðingu fyrir rapparanum. Í ljósi þessa vilji hann bjóða honum í ferðalag til Norður-Kóreu. Sky News greinir frá þessu.

„Veistu það, ég ætla að bjóða honum með mér í næstu ferð til Norður-Kóreu,“ segir Rodman sem viss um að West verði fyrir miklum innblæstri í heimsókn sinni til landsins.

„Ef hann vill búa til hljómplötu um landið þá verður hann í Norður-Kóreu í sex til sjö daga svo hann sjái allt það sem er í gangi þar.“

Ætla má að Kim Jong Un hafi heillast af íþróttinni vegna föður hans, Kims Jong Il, sem var forfallinn körfuboltaaðdáandi.

Á safni í Pyongyang sem tileinkað er gjöfum sem einræðisherrann hefur hlotið í gegnum tíðina frá leiðtogum annarra ríkja er til sýnis körfubolti með eiginhandaráritun frá Michael Jordan sem lék fyrir Chicago Bulls. Kim Jong Il fékk körfuboltann að gjöf frá Madeleine Albright, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna árið 2000.

Í síðustu viku fékk West áritaða Chicago Bulls treyju að gjöf frá Rodman. West birti síðan mynd af gjöfinni á Twittersíðu sinni með orðsendingu til Rodmans. Hann sagði körfuboltakappann vera mikla fyrirmynd. Rodman væri í sífellu að „brjóta múra með sjálfstæðri hugsun sinni“.

Rodman þakkaði fyrir fögur orð í sinn garð með myndbandi sem hann tók upp. Í því stingur hann upp á að félagarnir vinni saman að rapplagi um heimsfrið og leiðtoga ástarinnar.

Rodman og West hafa báðir hælt Donald Trump, Bandaríkjaforseta og skartað derhúfu með slagorði kosningabaráttu Trumps: „Gerum Bandaríkin glæst á ný“.

Dennis Rodman var 14 ár í NBA-deildinni og lék meðal annars með Detroit Pistons, San Antionio Spurs, Chicago Bulls, Los Angeles Lakers og Dallas Maverics. Rodman varð fimm sinnum NBA-meistari með sínum liðum.


Tengdar fréttir

Dennis Rodman á leiðinni til Norður-Kóreu

Körfuboltastjarnan Dennis Rodman er á leiðinni til Norður-Kóreu og er búist við því að hann lendi þar á morgun, þriðjudag. Greint er frá þessu á vef CNN en þar segir að fréttamenn miðilsins hafi rekist á Rodman á flugvellinum í Beijing. Rodman vildi hins vegar ekki svara neinum spurningum blaðamanna.

Rodman biður Trump að skipa sig friðarerindreka

Körfuboltastjarnan telur sig geta leyst deilurnar sem nú standa yfir á milli Bandaríkjamanna og Norður-Kóreu. Rodman og Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, eru nefnilega perluvinir.

Dennis Rodman á leið til Singapúr

Þessu segir Rodman frá í tísti og segist hann ætla að veita vinum sínum Trump og Kim allan þann stuðnings sem þeir þurfa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×