Formúla 1

Dennis: Titlar ómögulegir án eigin vélar

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Eric Boullier keppnisstjóri McLaren og Ron Dennis ræða málin.
Eric Boullier keppnisstjóri McLaren og Ron Dennis ræða málin. Vísir/Getty
Ron Dennis, framkvæmdastjóri McLaren telur ómögulegt fyrir formúlu 1 lið að vinna heimsmeistaratitla ef það hannar ekki vélina sjálft.

Ferrari og Mercedes eru einu liðin sem smíða bæði bíl og vél á þessu tímabili. Red Bull er hálfpartinn meðframleiðandi á Renault vélinni sem það notar. Það má því telja Red Bull þriðja liðið í þessum flokki.

Dennis segir að mikið fáist með að framleiða eigin vél líkt og fyrrnenfd lið gera. Hann telur einkar erfitt að sigra þessi lið vegna þess að þau hafa alltaf upplýsingar um vélina sem enginn annar hefur.

McLaren mun nota Honda vélar á næsta ári, Ron Dennis sér það sem svipað eða jafnvel nánara samband en Red Bull og Renault eiga.

„Helst má sjá muninn á Mercedes liðinu og öðrum liðum sem nota Mercedes vélar í ár. Munurinn er alltaf í kringum eina sekúndu, fyrir utan hraðann sem þeir finna svo þegar þeir eru undir pressu í keppni,“ sagði Dennis.

„Mín skoðun er sú og hún er margra innan liðsins, að þú átt ekki möguleika á að vinna heimsmeistaratitil ef þú ert ekki að fá það allra besta frá þínum vélaframleiðanda, sama hver það er,“ sagði Dennis.

„Raunin er sú að ef þú ert ekki með fullkomna stjórn á hönnun og framleiðslu vélarinnar, aðgang að grunn kóðum, þá getur þú ekki stýrt jafnvægi bílsins inn í beygjur og þess háttar, þá tapar þú miklum tíma,“ sagði Dennis að lokum.

Ron Dennis hefur sett það sem forgangsatriði að finna vélarframleiðanda eins og Honda, sem er tilbúinn í náið samstarf og getur framleitt góðar vélar. Hann segir að McLaren og Mercedes hafi átt gott samband en nú sé lykilatriði að lenda á fótunum með nýja Honda vél.


Tengdar fréttir

Framtíð Fernando Alonso í óvissu

Tvöfaldi heimsmeistarinn Fernando Alonso hefur ekkert viljað staðfesta hvar hann muni aka á næsta ári. Hann hefur nú útilokað að taka sér frí í eitt ár.

Bílskurinn: Rólegt í Rússlandi

Eftir kappakstur helgarinnar á spánýrri braut í Sochi, Rússlandi þar sem Lewis Hamilton jók forskot sitt á toppi stigakeppni ökumanna, er kominn tími til að skoða hvað gerðist. Fimm fyrstu hringirnir voru stútfullir af hasar, eftir það tók við rólegur og stöðugur kappakstur.

Pirelli breytti dekkjavali vegna ummæla Massa

Felipe Massa, ökumaður Williams liðsins í formúlu 1 sagði dekkjaval Pirelli fyrir brasilíska kappaksturinn "hættulegt, mjög hættulegt,“ og "óásættanlegt.“

McLaren með stóra uppfærslu

Eric Boullier, keppnisstjóri McLaren segir að liðið muni mæta til keppni í Abú Dabí með mikið uppfærðan bíl.

Sebastian Vettel til Ferrari

Fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel hefur tekið ákvörðun um að yfirgefa herbúðir Red Bull þar sem hann hefur unnið alla sína titla í Formúlu 1.

Lotus lofar bótum og betrun á næsta ári

Lotus liðið hefur átt erfitt tímabil og nú þegar á seinni hluta tímabilsins líður hefur E22 einungis fært liðinu 8 stig í keppni bílasmiða. Í fyrra náði liðið í 315 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×