Formúla 1

Dennis: Það verður McLaren sem veltir Mercedes úr sessi

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Jenson Button á McLaren bílnum.
Jenson Button á McLaren bílnum. Vísir/Getty
McLaren mun vinna heimsmeistarakeppni bílasmiða áður en einhverjum öðrum keppinauti Mercedes mun takast það, samkvæmt framkvæmdastjóra McLaren, Ron Dennis.

McLaren hefur átt á brattan að sækja að undanförnu. Liðið hefur verið aftar á ráslínum tímabilsins en þessu sögufræga liði sæmir. McLaren kom loksins bíl í þriðju lotu tímatökunnar á Spáni um þar síðustu helgi.

Liðið hefur fulla trú á að það verði þriðja fljótasta liðið í Mónakó kappakstrinum um næstu helgi. Verðlaunasæti eru þó enn fjarlægur draumur að mati Dennis.

„Ég tel í hreinskilni sagt að næstu heimsmeistarar á eftir Mercedes verði McLaren,“ sagði Dennis í viðtali hjá BBC.

„Þetta er stór áskorun en ég hef mikla trú á því að tæknileg kunnátta okkar skili þeim árangri og ég hef trú á Honda,“ bætti Dennis við.

Honda ætlar sér að mæta með glænýjanog algjörlega endurhannaða vél til keppni á næsta ári. Uppfærsluskammtakerfið verður sett í tunnuna og því munu vélaframleiðendur geta byrjað alveg frá grunni. Dennis telur að það muni skila McLaren unnum keppnum á næsta ári.

„Reglugerðin fyrir 2017 mun jafna leikinn aftur og það er nægur tími fyrir okkur og Honda til að ná öðrum liðum. Við verðum í góðri stöðu á næsta ári til að vinna keppnir.

Ég vil ekki spá fyrir um heimsmeistarakeppnir en ég hef það á tilfinningunni að það verði erfitt fyrir alla að velta Mercedes Benz úr sessi. Ég er þess fullviss að okkur mun takast það á undan öðrum,“ sagði Dennis að lokum.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Baráttan í Barselóna

Max Verstapen vann sína fyrstu keppni eftir ótrúlega atburðarás síðustu viku. Ökumenn Mercedes duttu úr keppni á fyrsta hring eftir árekstur við hvorn annan.

Williams með furðulegan afturvæng á æfingu

Williams kom öllum á óvart á æfingu á Barselóna brautinni. Æfingar hafa staðið yfir á brautinni eftir spænska kappaksturinn um helgina. Williams mætti með tveggja hæða afturvæng á æfinguna í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×