Enski boltinn

Dembele dæmdur í sex leikja bann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mousa Dembele.
Mousa Dembele. vísir/getty
Miðjumaður Tottenham, Mousa Dembele, var í dag dæmdur í sex leikja bann fyrir hegðun sína í leiknum gegn Chelsea á dögunum.

Þá missti hann stjórn á skapi sínu í glímu við Diego Costa og potaði meðal annars í augun á Costa. Dembele slapp með refsingu í leiknum en aganefndin tók málið upp.

Dembele ætlar ekki að áfrýja úrskurði aganefndarinnar og getur því ekki spilað fyrr en í fimmta leik á næstu leiktíð.

Hann spilaði 29 leiki á þessari leiktíð og skoraði í þeim þrjú mörk.

Alls fengu níu leikmenn Tottenham gult spjald í leiknum gegn Chelsea sem er met í ensku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×