Lífið

Deitar fjárfestingarbankamann

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Leikkonan Lindsay Lohan er búin að finna ástina í örmum fjárfestingarbankamannsins Patrick Mahony samkvæmt heimildum tímaritsins InTouch.

„Hún býr með honum,“ segir heimildarmaður tímaritsins.

Patrick á tvær ungar dætur sem búa með honum og hefur Lindsay nánast gengið þeim í móðurstað.

„Lindsay hjálpar til við að baða þær. Hún hjálpar líka til við að lita eftir þeim og þær kunna mjög vel við hana,“ segir annar heimildarmaður InTouch og bætir við að Lindsay sé á góðum stað núna.

„Hún er loksins í alvöru sambandi með mjög jarðbundnum manni.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×