Innlent

Deilt um Facebook-hegðun saksóknara

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, er ákærður fyrir að leka minnisblaði um Tony Omos til óviðkomandi aðila.
Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, er ákærður fyrir að leka minnisblaði um Tony Omos til óviðkomandi aðila. Vísir/GVA
Frávísunarkrafa Gísla Freys Valdórssonar í svokölluðu lekamáli var tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Gísli Freyr er ákærður fyrir brot gegn þagnarskyldu í opinberu starfi en hann á að hafa „látið óviðkomandi í té efni samantektar er bar yfirskriftina „Minnisblað varðandi Tony Omos,““ eins og segir í ákæru.

Við málflutning málsins í morgun spannst nokkur umræða um þann hluta frávísunarkröfunnar sem snýr að því að hlutlægnisskylda ákæruvaldsins hafi ekki verið virt við meðferð málsins.

Verjandi Gísla Freys, Ólafur Garðarsson hæstaréttarlögmaður, sagði rannsóknaraðila hafa einblínt á það sem gæti bent til sektar umbjóðanda síns en leitt hjá sér öll atriði sem ýtt gætu undir sakleysi hans. Þannig hafi hlutlægnisskyldu ekki verið gætt. Þá sagði verjandi saksóknara jafnframt vanhæfan í málinu vegna þess að hann hafði „lækað“ við færslu á Facebook.

Um var að ræða færslu sem Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, deildi á samskiptamiðlinum þann 18. september síðastliðinn. Þar sagði hann Pál Vilhjálmsson, bloggara, hafa sett fram fyndna samsæriskenningu á bloggi sínu fyrr um daginn varðandi lekamálið.

Saksóknari setti „læk“ við umrædda færslu og sagði verjandi það sýna að Helgi Magnús væri ekki hlutlaus í málinu. Hann hefði með „lækinu“ tekið afstöðu í málinu og því bæri honum að víkja ef málinu yrði ekki vísað frá dómi.

Dómari spurði verjanda nánar út í þetta og hvað fælist í því að setja „læk“ við færslur á Facebook. Dómari sagði að stöðu sinnar vegna væri hann ekki á samskiptamiðlinum en honum skildist að maður ýtti á einhvern takka til þess að „læka“. Það væru því ekki höfð nein ummæli eftir vararíkissaksóknara á samskiptamiðlinum.

Verjandi sagði þetta rétt skilið hjá dómaranum en saksóknari hafi engu að síður lýst afstöðu sinni í málinu með því að setja „læk“ við umrædda færslu.

Fráleitt að víkja vegna „læksins“

Saksóknari mótmælti þessu og sagði að engin þátttaka fælist í umræðunni með „lækinu“ á Facebook. Það væri ekki verið að taka afstöðu til sakarefnisins og því fráleitt að víkja frá málinu vegna þessa. Það lægi ekki einu sinni ljóst fyrir hvað það var sem saksóknari hafi fundist fyndið; skopskyn manna sé misjafnt og kannski hafi honum fundist eitthvað allt annað fyndið við málið en þeim sem deildi færslunni frægu.

Saksóknari sagði það svo liggja í hlutarins eðli að ákæruvaldið teldi Gísla Frey sekan. Afstaða hefði verið tekin til þess þegar gefin var út ákæra. Ákæruvaldið telji að gögn málsins sýni fram á sekt hans og í því fælist ekki hlutlægni.

Verjandi Gísla fór þar að auki fram á að málinu yrði vísað frá vegna þriggja annarra atriða. Í fyrsta lagi var farið fram á frávísun vegna þess hve ákæran er óskýr, í örðu lagi fyrir brot gegn meðalhófsreglu og í þriðja lagi fyrir brot gegn jafnræðisreglu. Saksóknari hafnaði þessu öllu og fór fram á að málið yrði tekið til efnislegrar meðferðar.


Tengdar fréttir

Hanna Birna ber vitni í málinu

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra er á meðal þeirra sem kvödd verða til vitnis í máli ríkissaksóknara á hendur Gísla Frey Valdórssyni.

Gísli Freyr neitar sök

Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður innanríkisráðherra, neitaði sök í lekamálinu svokallaða við þingfestingu málsins sem fram fór í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Krefja Gísla Frey um sjö milljónir króna

Gísli Freyr Valdórsson, aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, er krafinn um sjö milljónir króna í miskabætur vegna meints leka úr innanríkisráðuneytinu.

Yfirlýsing frá Gísla Frey: Segist fullviss um að verða sýknaður

"Svo virðist sem grundvallarafstaða ákæruvaldsins, sem felst í því að ekki sé gefin út ákæra nema yfirgnæfandi líkur séu á sakfellingu, sé að engu höfð,“ segir aðstoðarmaður innanríkisráðherra sem nú hefur verið vikið frá störfum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×