Innlent

Deildir sameinaðar og ómskoðunum fækkað

Kristín Ýr Gunnarsdóttir skrifar
Deildir hafa verið sameinaðar og ómskoðunum mun fækka á Landspítalanum til að bregðast við þeim hnút sem kjaradeila ljósmæðra og ríkisins er komin í. Ljósmóðir sem sagt hefur upp störfum á fósturgreiningardeild Landspítalans segir fyrstu ómskoðun mikilvæga fyrir foreldra.

Róðurinn á Landspítalanum þyngist dag frá degi og hafa stjórnendur spítalans brugðist við uppsögnum ljósmæðra og yfirvinnubanni með því meðal annars að loka meðgöngu- og sængurlegudeild og sameina hana kvenlækningadeild 21A. Frá og með mánudeginum fellur fyrsta reglubundna ómskoðun þungaðra kvenna niður á Landspítalanum en hún hefur verið konum í boði á elleftu til fjórtándu viku meðgöngu.

Í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag sagði Þóra Marinósdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi, margar konur hafa hringt og spurt um fyrstu ómskoðunina og óskað eftir tíma hjá þeim. Þar er ekki hægt að bæta við konum í slíka skoðun því fáir tímar eru í boði út af mannskap. Signý Dóra Harðardóttir, ljósmóðir á fósturgreiningardeild, segir að flestar konur þiggi þessa rannsókn. “Við erum að telja fóstrin inn í mömmu og meta meðgöngulengd og þar með setja væntanlegan fæðingar. Í þessari skoðun greinum við alvarlegustu fósturgallana. Það er á þessum tímapunkti sem fólk þarf stundum að taka alvarlegar ákvarðanir. Það er gott að geta klárað það þarna í stað þess að bíða til 20 vikna,” segir Signý.

Í næstu viku eru 69 konur bókaðar í þennan tiltekna sónar og verðandi móðir sem fréttastofa heyrði í og á bókaðan tíma segir stöðuna valda sér miklu hugarangri. Henni var sagt að mæta í tímann en hvort af honum verður kemur bara í ljós. Átta ljósmæður vinna á fósturgreiningardeildinni og hafa tvær af þeim sagt upp störfum og er Signý önnur þeirra. “Mér er svolítið misboðið hvernig launasetning okkar hefur verið. Ég gæti fengið svipuð laun á því að vera bara yfir krónubúð einhvers staðar með enga ábyrgð á mannslífum og ekki átta ára menntun og þjálfun á bakinu,” segir hún um stöðuna.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×