Enski boltinn

De Gea stelur fyrisögnunum en Carrick er maðurinn hjá United

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Dietmar Hamann, fyrrverandi leikmaður Liverpool og þýska landsliðsins í fótbolta, segir David Dea Gea, markvörð Manchester United, vera þann besta í ensku úrvalsdeildinni, en það er Michael Carrick sem er maðurinn á bakvið upprisu liðsins undanfarnar vikur.

Hamann var annar af sérfræðingum BBC í Match of the Day 2 á sunnudaginn ásamt Alan Shearer þar sem farið var yfir 3-0 sigur United gegn Liverpool.

Sjá einnig:Segir United geta unnið Englandsmeistaratitilinn

David De Gea fékk mikið lof fyrir sína frammistöðu enda lokaði Spánverjinn búrinu. Hann varði átta skot, mörg úr dauðafærum, en Hamann bendir á Carrick þegar talað er um sex sigra United-liðsins í röð.

„Markvörslur Davids De Gea stela fyrirsögnunum, en Michael Carrick spilaði stórt hlutverk í sigrinum. Það kemur mér ekkert á óvart að liðið sé búið að vinna sex leiki í röð eftir að hann kom aftur inn í byrjunarliðið,“ segir Hamann.

David De Gea átti stórleik.vísir/getty
„Carrick er eflaust vanur því að spila vel en sjá aðra leikmenn fá hrósið. En það sést alveg hversu mikils hann er metinn innan hópsins. Robin van Persie sagði eftir leikinn að Carrick hefði skipt sköpum í varnarleiknum því hann var svo rólegur á boltann. Það segir allt sem segja þarf.“

„Carrick stýrir vanalega leik United-liðsins. Hann er oftast á miðjunni, en gegn Liverpool var hann í vörninni. Hann getur spilað báðar stöður og einu vandræðin sem veldur Louis van Gaal er að það eru ekki fleiri eins og hann.“

Sjá einnig:Mögnuð frammistaða De Gea | Myndband

Hamann gerir þó ekki lítið úr frammistöðu De Gea og bendir á að einu mistök Carricks hafi verið þegar hann missti af sendingu Jonny Evans til Raheem Sterling. Sterling komst í dauðafæri en lét De Gea verja frá sér.

„Markvörður United varði bara einu sinni alveg frábærlega. Það var þegar hann varði skot Balotelli í slána. En hann varði í heildina átta skot sem þýðir að hann átti stóran þátt í sigrinum,“ segir Hamann.

„Það má færa rök fyrir því að leikmenn Liverpool hafi mátt klára færin sín betur, en þeir áttuðu sig á því eins og aðrir að það þarf að setja boltann alveg út við stöng til að koma honum framhjá De Gea.“

Sjá einnig:Lok, lok og læs hjá De Gea | Sjáðu mörkin

„Frammistaða De Gea á þessari leiktíð hefur verið svo góð að hann er af sumum sagður besti markvörður deildarinnar. Mér hefur fundist hann vera bestur í marga mánuði,“ segir Dietmar Hamann.


Tengdar fréttir

Mögnuð frammistaða De Gea | Myndband

Spænski markvörðurinn David De Gea átti stórkostlegan leik þegar Manchester United vann 3-0 sigur á Liverpool á Old Trafford í dag.

Leikmaður Manchester United flæktur í hneykslismál

Ander Herrera, miðjumaður Manchester United, er meðal þeirra sem eru ákærðir fyrir að hafa tekið þátt í hagræðingu úrslita í leik í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta tímabilið 2010 til 2011.

Spánverjinn lokaði búrinu

David de Gea átti frábæran leik í marki Manchester United þegar liðið vann Liverpool 3-0 í ensku úrvalsdeildinni í gær. Spánverjinn hefur þaggað niður í gagnrýnisröddum með frammistöðu sinni á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×