Enski boltinn

De Gea: Ég er elskaður hjá Man. Utd

De Gea fagnar.
De Gea fagnar. vísir/getty
Orðrómurinn um að markvörðurinn David de Gea sé á leið til Real Madrid verður háværari með hverri vikunni.

Spænski landsliðsmarkvörðurinn veit vel af þessum orðrómi en segist vera hamingjusamur hjá Man. Utd.

„Það er erfitt að segja til um hvort það komi tilboð frá Real Madrid. Ef maður tæki mark á öllu sem er skrifað um mann þá væri ég á leið til þúsudnd félaga," sagði De Gea.

„Mér líður vel hjá Man. Utd. Ég er elskaður þar og einbeiti mér bara að því að spila vel fyrir félagið."

De Gea mátti þola mikla gagnrýni eftir að hann kom fyrst til félagsins. Það tók hann tíma að ná áttum en hann hefur verið á mikilli uppleið síðustu mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×