Enski boltinn

De Gea: Alltaf sérstakt að mæta City

Stefán Árni Pálsson skrifar
De Gea var valinn leikmaður ársins hjá Manchester United í vor, þriðja árið í röð.
De Gea var valinn leikmaður ársins hjá Manchester United í vor, þriðja árið í röð. vísir/getty
David de Gea, markvörður Manchester United, segir að það sé alltaf sérstakt að spila við erkifjendurna í Manchester City en liðin mættast í æfingaleik í Peking á mánudaginn.

„Það er kannski ekki alveg eins þegar leikurinn fer ekki fram á England, en það er samt sem áður alltaf nokkuð sérstakt að spila við City.

De Gea gæti komið við sögu í leiknum en það væri fyrsti leikurinn hans á undirbúningstímabilinu. Hann stóð í ströngu á Evrópumótinu í Frakklandi í sumar og tók því ekki þátt í leikjunum gegn Wigan Athletic og Borussia Dortmund á dögunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×