Fótbolti

De Bruyne tryggði Belgum sigur

Anton Ingi Leifsson skrifar
Bruyne í leik með Belgíu, en hann var hetjan í dag.
Bruyne í leik með Belgíu, en hann var hetjan í dag. vísir/getty
Belgía vann 2-1 sigur á Sviss í vináttulandsleik fyrir Evrópumótið í Frakklandi í sumar, en leikurinn fór fram í Sviss.

Blerim Dzemaili kom Sviss yfir á 31. mínútu, en þremur mínútum síðar jafnaði framherji Everton, Romelu LUkaku metin.

Staðan var 1-1 í hálfleik, en á 81. mínútu fékk Haris Seferovic rautt spjald í liði Sviss. Belgar nýttu sér liðsmuninn og Kevin de Bruyne skoraði sigurmarkið tveimur mínútum síðar.

Belgía er í riðli með Ítalíu, Írlandi og Svíþjóð á EM í sumar, en Sviss er með Albaníu, Rúmeníu og gestgjöfunum í Frakklandi í riðli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×