Fótbolti

De Bruyne: Ekki hægt að bera City saman við United og Liverpool

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
De Bruyne á blaðamannafundi City í gær.
De Bruyne á blaðamannafundi City í gær. Vísir/Getty
Það er ekki hægt að bera sögu Manchester City í Evrópukeppnum við sögu Manchester United og Liverpool. Þetta segir Kevin De Bruyne, leikmaður City sem mætir Monaco í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í ár.

City komst alla leið í undanúrslit keppninnar í fyrra. Það var í fyrsta sinn í sögu félagsins sem liðið komst svo langt en liðið féll þá úr leik fyrir verðandi Evrópumeisturum Real Madrid.

De Bruyne var hetjan þegar City sló út PSG í 8-liða úrslitum keppninnar í fyrra en þeir bláklæddu mæta nú öðru frönsku liði, Monaco í 16-liða úrslitum keppninnar en fyrri leikur liðanna er klukkan 19.45 í kvöld.

Sjá einnig: Fálkinn hefur náð flugi á nýjan leik

„Fólk talar um lið eins og Manchester United og Liverpool og sögu þessara félaga,“ sagði Belgíumaðurinn við enska fjölmiðla. „Þetta eru auðvitað frábær lið og það er ekki hægt að bera okkur saman við þau því að við eigum ekki sama bakgrunn í Evrópukeppnum.“

„United og Liverpool hafa spilað í Evrópukeppnum í áraraðir en við í bara 5-6 ár. Við þurfum meiri tíma til að hægt að bera þessi lið saman.“

Sjá einnig: Guardiola: Verðum „drepnir“ ef við töpum

De Bruyne segist ekki velta sögunni mikið fyrir sér en að hún skipti marga miklu máli. Þess vegna sé talað öðruvísi um Manchester City og hin stóru liðin.

„Það vilja allir í Englandi að ensk lið standi sig vel í Evrópukeppnum. Við viljum leggja okkar af mörkum á þeim vettvangi. Ef okkur tekst það næstu 50 árin og vinnum nokkra Evróputitla verður kannski litið á okkur með öðrum augum.“


Tengdar fréttir

Sturridge flýgur veikur heim

Daniel Sturridge er á leiðinni heim frá La Manga eftir að framherji Liverpool greindist með vírus. Liverpool segir frá þessu á heimasíðu félagsins.

Engin leið í gegn fyrir City-menn

Huddersfield Town og Manchester City þurfa að mætast aftur í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar eftir 0-0 jafntefli á John Smith's Stadium í dag.

Fálkinn hefur náð flugi á nýjan leik

Radamel Falcao og félagar hans í Monaco eru mættir til Man­chester þar sem þeir mæta Manchester City í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Guardiola: Verðum „drepnir“ ef við töpum

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, segir að sínir menn muni fá það óþvegið komist þeir ekki áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×