Fótbolti

De Biasi tekur líklega við af Conte

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
De Biasi á línunni með albanska landsliðinu.
De Biasi á línunni með albanska landsliðinu. vísir/getty
Ítalska knattspyrnusambandið leitar nú að nýjum landsliðsþjálfara og er búið að finna sinn mann.

Það er Gianni de Biasi en hann er 59 ára gamall Ítali. Hann er að þjálfa landslið Albaníu í dag og kom liðinu á EM næsta sumar.

Þetta er í fyrsta skipti sem Albanía kemst á EM og árangurinn vakti mikla athygli og gerði De Biasi að afar eftirsóttum þjálfara.

Antonio Conte hættir með ítalska liðið eftir EM og Ítalir ætla að fá De Biasi til að hætta með Albani og koma heim.

Hann var áður þjálfari Udinese, Torino, Levante og Brescia meðal annars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×