Viðskipti innlent

Davíð Ólafur nýr fjármálastjóri Greenqloud

Atli Ísleifsson skrifar
Davíð Ólafur Ingimarsson.
Davíð Ólafur Ingimarsson.
Davíð Ólafur Ingimarsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri (CFO) Greenqloud.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu, sem framleiðir skýjahugbúnaðarinn Qstack™, segir að Davíð hafi frá árinu 2007 starfað hjá Landsvirkjun, síðast sem yfirmaður sjóðastýringar og þar áður sem yfirmaður lánamála. Þar áður hafi Davíð starfað sem hagfræðingur hjá sjávarútvegsráðuneytinu í þrjú ár.

„Meðfram þessu hefur Davíð starfað sem stundakennari við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands ásamt ýmsri ráðgjafavinnu.

Davíð er löggiltur verðbréfamiðlari með M.Sc. gráður í hagfræði og fjármálum fyrirtækja,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×