Menning

Davíð með útgáfuteiti í tilefni útgáfu Mórúnu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Davíð Þór
Davíð Þór
Fyrsta bókin í bókaflokki um Mórúnu, Í skugga Skrattakolls kemur út í dag. Af því tilefni verður efnt til útgáfuteitis í verslun Eymundsson við Skólavörðustíg frá kl. fimm til sjö í dag. Davíð mun lesa upp úr bókin og árita. Eymundsson býður bókina á tilboði í tilefni af því. Davíð Þór Jónsson er fyrir löngu orðinn landsþekktur skemmtikraftur og pistlahöfundur.

Davíð hefur líka þýtt leikrit, skáldsögur og söngtexta fyrir söngleiki auk þess að þýða fyrir sjónvarp.  Hann hefur samið vinsæl dægurlög og texta, sent frá sér tvær ljóðabækur fyrir börn, Jólasnótirnar 13 og Vísur fyrir vonda krakka auk vísindaskáldsögunnar Orrustan um Fold. Þá hefur Davíð leikið í fjölda leikrita, kvikmynda og sjónvarpsþátta.

Davíð er fæddur 5. janúar 1965 í Reykjavík en sleit barnsskónum að mestu í Hafnarfirði.

Hann varð stúdent frá Flensborgarskólanum árið 1985 og lauk embættisprófi frá guðfræðideild Háskóla Íslands árið 2011. Hann var skipaður í embætti héraðsprests í Austurlandsprófastsdæmi frá og með 1. nóvember 2014 en áður hafði hann unnið að æskulýðsmálum í prófastsdæminu á vegum kirkjunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×