Golf

Davíð Gunnlaugsson tryggði sér sigur í meistaramóti GKJ með vallarmeti á lokahringnum

Davíð, í miðjunni, fagnar titlinum ásamt keppinautum sínum Degi og Kristjáni.
Davíð, í miðjunni, fagnar titlinum ásamt keppinautum sínum Degi og Kristjáni. Vísir
Davíð Gunnlaugsson sigraði í meistaraflokki á meistaramóti Golfklúbbsins Kjalar sem kláraðist í gær en hann lék hringina fjóra á Hlíðavelli í Mosfellsbæ á samtals þremur höggum yfir pari.

Davíð, sem er einnig PGA-golfleiðbeinandi í klúbbnum var fimm höggum á eftir Degi Ebenezarsyni fyrir lokadaginn en hann tryggði sér sigurinn með því að setja glæsilegt vallarmet upp á 67 högg eða fimm undir pari á lokahringnum.

Hann sigraði mótið að lokum með þremur höggum en afrekskylfingurinn Kristján Þór Einarsson sem nýlega sigraði á Íslandsmótinu í holukeppni nældi sér í annað sætið eftir bráðabana við Dag Ebenezarson.

„Lykillinn að sigrinum og þessum frábæra hring var pútterinn, hann var sjóðheitur og ég setti mörg góð pútt niður,“ sagði Davíð við fréttaritara eftir hringinn. „Ég vissi að ég þyrfti að eiga góðan dag til þess að eiga möguleika á að ná strákunum og til þess þurfti ég að spila djarft golf.“

Davíð hefur verið meðlimur í GKJ síðan að hann var lítill strákur og því er sigurinn honum afar kær. „Það var virkilega sætt að vinna loksins og fá nafnið mitt á bikarinn. Það hafa margir góðir kylfingar sigrað þetta mót og það hefur verið draumur hjá mér lengi að komast í þann hóp. Það er einstök stemming í meistaramótinu í Mosfellsbænum og í raun ekkert mót sem er skemmtilegra að taka þátt í.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×