Erlent

David Cameron: Bretum er betur borgið innan ESB

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
David Cameron fyrir utan Downing-stræti 10.
David Cameron fyrir utan Downing-stræti 10. Nordicphotos/Getty
David Cameron, forsætisráðherra Breta, segir þjóð sinni betur borgið innan Evrópusambandsins en utan. Hann segir þó vaxandi hluta landsmanna vilja gera breytingar á aðildarsamningnum.

Reiknað er með því að Cameron flytji ræðu síðar í mánuðinum um stöðu Breta og afstöðu til Evrópusambandsins. Í viðtali við sjónvarpsþáttinn Daybreak á ITV í morgun sagðist Cameron telja Bretum best borgið innan ESB. Hann taldi þó stöðuga fjölgun í hópi þeirra sem vilja endurskoða forsendur aðildar.

„Ég tel okkur betur borgið innan Evrópusambandsins," sagði Cameron að því er Guardian greinir frá.

„Við erum viðskiptaþjóð og þurfum af þeim sökum að vera á sameiginlega markaðnum. Við viljum ekki aðeins selja vörur innan Evrópu heldur viljum við eiga sæti við borðið og koma að reglusetningu. Hvorki ég né hinn almenni borgari í Bretlandi er ánægður með núverandi samband landsins við sambandið," sagði forsætisráðherrann.

Cameron segir Evrópusambandið breytast dag frá degi vegna sameiginlega gjaldmiðilsins, evrunnar.

„Gjaldmiðilinnn knýr breytingarnar áfram. Við erum ekki aðili að myntbandalaginu og verðum það aldrei, að minnsta kosti ekki á meðan ég er forsætisráðherra. Við getum því nýtt breytingartímana til þess að ganga úr skugga um að samband okkar við Evrópusambandið nýtist okkur betur. Við eigum að vera viss um að breskur almenningur fái það sem hjarta þeirra þráir."

Cameron er sagður undir töluverðum þrýstingi frá þeim hluta flokksbræðra sinna í Íhaldsflokkum sem vill að Bretar segi sig úr Evrópusambandinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×